Bluetooth Headset BH 214 - Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

background image

Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

Þetta tæki er með innbyggða, fasta,
endurhlaðanlega rafhlöðu. Ekki reyna að
fjarlægja rafhlöðuna úr tækinu þar sem

það getur skemmt tækið. Tækið er ætlað
til notkunar þegar það er hlaðið með
eftirfarandi hleðslutækjum: AC-3, AC-4,

background image

ÍSLENSKA

AC-5, AC-8, DC-4 og DC-9. Númer
hleðslutækisins getur verið mismunandi
eftir klónni sem er notuð. Gerð klónnar er
auðkennt af einu af eftirfarandi: E, EB, X,
AR, U, A, C eða UB. Hægt er að hlaða og
afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum
en að því kemur að hún gengur úr sér.
Aðeins skal endurhlaða rafhlöðuna
með hleðslutækjum sem Nokia hefur
samþykkt til notkunar með þessu tæki.
Notkun ósamþykktra hleðslutækja getur
valdið eldhættu, sprengingu, leka eða
haft aðra áhættu í för með sér.

Ef verið er að nota rafhlöðu í fyrsta skipti,
eða ef rafhlaðan hefur ekki verið notuð
í langan tíma, kann að vera nauðsynlegt
að tengja hleðslutækið, aftengja það
síðan og tengja það aftur til að hefja
hleðsluna. Ef rafhlaðan er alveg tóm
geta liðið nokkrar mínútur þar til
hleðsluvísirinn birtist á skjánum.

Taka skal hleðslutækið úr sambandi við
rafmagnsinnstungu og tækið þegar það
er ekki í notkun. Ekki má hafa fullhlaðna
rafhlöðnu í sambandi við hleðslutæki þar

sem ofhleðsla getur stytt líftíma hennar.
Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni
smátt og smátt ef hún er ekki í notkun.

Æskilegast er að rafhlaðan sé alltaf höfð
í hita á bilinu frá 15°C að 25°C (frá 59°F
að 77°F). Of mikill hiti eða kuldi draga úr
endingu og líftíma rafhlöðu. Tæki með
heitri eða kaldri rafhlöðu kann að hætta
að starfa tímabundið. Einkum hefur
mikið frost takmarkandi áhrif á rafhlöður.

Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem
þær geta sprungið. Rafhlöður geta einnig
sprungið ef þær skemmast.

Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki.

Mikilvægt: Endingartímar
rafhlöðu eru aðeins til
viðmiðunar og eru breytilegir

eftir álagi á kerfið, þeim eiginleikum
símans sem notaðir eru, aldri og ástandi
rafhlöðunnar, hitastigi hennar og
mörgum öðrum þáttum.

background image

ÍSLENSKA