 
Rafhlaðan hlaðin
Áður en þú hleður rafhlöðuna skaltu 
lesa vandlega kaflann „Upplýsingar 
um rafhlöðu og hleðslutæki“.
Viðvörun: Aðeins skal nota 
hleðslutæki sem Nokia hefur 
samþykkt til notkunar með 
þessari tilteknu gerð. Ef notaðar eru aðrar 
gerðir gæti öll ábyrgð og samþykki fallið 
niður og slíkri notkun getur fylgt hætta.
Þegar aukabúnaður er tekinn úr 
sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.
1. Stingdu hleðslutækinu í samband
við innstungu.
2. Stingdu snúru hleðslutækisins
í tengið (14). Rauða stöðuljósið 
logar á meðan höfuðtólið er 
í hleðslu. Það getur tekið allt 
að 2 klukkustundir að hlaða 
rafhlöðuna að fullu.
 
ÍSLENSKA
3. Græna stöðuljósið logar
þegar rafhlaðan er fullhlaðin. 
Hleðslutækið er fyrst tekið úr 
sambandi við höfuðtólið, síðan 
úr rafmagnsinnstungunni.
Fullhlaðin rafhlaða endist 
í allt að 8 klukkustundir í tali, 
300 klukkustundir í bið og allt að 
7 klukkustundir í tónlistarspilun.
Staða rafhlöðunnar þegar höfuðtólið 
er ekki tengt við hleðslutæki er 
könnuð með því að ýta á svartakkann 
þegar kveikt er á höfuðtólinu og símtal 
er ekki í gangi. Ef stöðuljósið er grænt 
er rafhlaðan nægilega hlaðin. Ef ljósið 
er gult gæti þurft að hlaða rafhlöðuna 
bráðlega. Ef ljósið er rautt skaltu 
hlaða rafhlöðuna.
Þegar rafhlöðuhleðslan er lítil gefur 
höfuðtólið frá sér tón á 5 mínútna 
fresti og rauða stöðuljósið blikkar.