Bluetooth Headset BH 214 - Höfuðtólið parað og tengt

background image

Höfuðtólið parað og tengt

Para þarf og tengja höfuðtólið við
samhæft tæki áður en hægt er að
nota það.

Ef farsíminn styður A2DP Bluetooth-
sniðið, og er með innbyggðan
tónlistarspilara, geturðu notað hann
til að spila tónlist um höfuðtólið.

background image

ÍSLENSKA

Ef síminn þinn styður ekki A2DP-
sniðið geturðu parað höfuðtólið
við símann annars vegar og
tónlistarspilara sem styður sniðið
hins vegar. Ef þú hefur parað og
tengt höfuðtólið við símann skaltu
aftengja tækin áður en þú parar
höfuðtólið við tónlistarspilarann.

1. Gakktu úr skugga um að kveikt

sé á farsímanum eða
tónlistarspilaranum og að slökkt
sé á höfuðtólinu.

2. Haltu rofanum inni (í u.þ.b.

5 sekúndur) þar til bláa stöðuljósið
byrjar að blikka hratt.

3. Kveiktu á Bluetooth í símanum

eftir u.þ.b. 3 mínútur og láttu
leita að Bluetooth-tækjum.

4. Veldu höfuðtólið af listanum

yfir þau tæki sem fundust.

5. Ef nauðsyn krefur skaltu slá inn

lykilorðið 0000 til að para og
tengja höfuðtólið við tækið.

Ef tækið er ekki með takkaborð
getur verið að það noti sjálfkrafa
þetta lykilorð.

Í sumum tækjum gæti þurft að

koma tengingunni á að pörun
lokinni.

Þegar höfuðtólið er tengt við tækið
og er tilbúið til notkunar blikkar
stöðuljósið rólega í bláum lit.

Hægt er að para höfuðtólið við allt
að átta tæki en aðeins er hægt að
tengja það við eitt tæki sem styður
HFP-sniðið og annað sem styður
A2DP-sniðið í einu.

Til að tengja höfuðtólið handvirkt
við tækið sem síðast var notað
og styður HFP-sniðið (t.d. eftir að
tenging hefur rofnað) skaltu slökkva
og kveikja á höfuðtólinu, eða halda
svartakkanum inni í um tvær
sekúndur. Til að tengja höfuðtólið
handvirkt við tæki sem styður A2DP-
sniðið skaltu ýta á spilunartakkann.

background image

ÍSLENSKA

Hugsanlega er hægt að stilla tækið
þannig að höfuðtólið tengist því
sjálfkrafa. Í Nokia-tækjum er þessi

möguleiki virkjaður með því að
breyta stillingum fyrir pöruð tæki
í Bluetooth-valmyndinni.